Breytingar á rekstri okkar
Yfirfærsla á rekstri
29. mars 2019, fluttum við eftirfarandi gerðir af tryggingum frá Aviva Life & Pensions UK Limited til Aviva Life & Pensions Ireland dac:
- allar tryggingar sem voru gefnar út af og/eða rekstur á vegum Aviva Life & Pensions UK Limited í útibúum þess á Írlandi, í Frakklandi og Belgíu; og
- tilteknar aðrar tryggingar sem voru gefnar út og/eða rekstur sem stundaður var á grundvelli þjónustufrelsis í Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Íslandi, Írlandi og Svíþjóð.
Aviva Life & Pensions Ireland dac hét áður Friends First Life Assurance Company dac.
Hvaða þýðingu hefur yfirfærslan fyrir þig?
Aviva Life & Pensions Ireland dac er nú tryggingaveitandinn þinn.
Yfirfærslan hefur engin áhrif á:
- hvernig við fjárfestum í sjóðunum sem fjármagna tryggingarnar þínar;
- greiðslur sem þú innir af hendi eða færð samkvæmt skilmálum tryggingarinnar;
- hvernig þú setur þig í samband við okkur; eða
- það þjónustustig sem þú færð.
Finna má frekari upplýsingar um hvað býr að baki þessari yfirfærslu í hlutanum spurningar og svör
Verklag sem er hannað til að vernda hagsmuni þína
Til að tryggja að staðinn væri vörður um hagsmuni tryggingataka og að ekki myndi halla á þá með ósanngjörnum hætti fylgdum við ákveðnu verklagi. Það fólst meðal annars í:
- að gefa tryggingartökum fyrirvara um yfirfærslurnar;
- að gera tryggingartökum sem þær höfðu áhrif á kunnugt um að þeir hefðu tækifæri til að mótmæla og leggja andmæli sín beint fyrir dómstólinn ef þeir teldu að yfirfærslan hefði neikvæð áhrif á þá;
- ítarlegri úttekt óháðs sérfræðings;
- að ráðfæra okkur við eftirlitsaðila okkar í Bretlandi og fjármálaeftirlitið á Írlandi; og
- að fá samþykki dómstóls í Lundúnum.
Tillaga okkar var samþykkt af dómstólnum 20. febrúar 2019.
Finna má afrit af skýrslum óháða sérfræðingsins, skjölum áætlunarinnar og öðrum málsskjölum í skjalasafninu okkar.